Ný könnun RÚV í Norðausturkjördæmi.

RUV birti nýja könnun í Norðausturkjördæmi áðan. Í könnunni kemur fram að Sjálfstæðisflokkur er með 28% fylgi og þrjá menn. Framsóknarflokkur  er með 21,9% fylgi og tvo menn. Vinstri Grænir eru með 23,9% og tvo menn. Samfylking er með 19,7% og tvo menn. Sérstaklega er ég ánægður með niðurstöðu Framsóknarflokksins hér í Þingeyjarsýslum þar sem hann mælist með 31,7% og þar með eigum við ekki langt í að ná kjörfylgi okkar í sveitarstjórnarkosningunum 2006 í sveitarfélaginu Norðurþingi.

Tvennt vekur mikla athygli í þessari könnun, það er hversu lítið fylgi Steingrímur J. Sigfússon og VG hefur í sinni heimasýslu miðað við flugið á VG á landsvísu. Hitt er að VG er með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri. Sérstaklega miðað við að Sjálfstæðisflokkurinn er með fyrrverandi bæjarstjóra Kristján Þór Júlíusson í fyrsta sæti, en hjá VG er einungis Akureyringur í fjórða sætinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnlaugur Stefánsson

Höfundur

Gunnlaugur Stefánsson
Gunnlaugur Stefánsson

Forseti sveitarstjórnar Norðurþings

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...savikurhofn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband