Jón góður í Kastljósinu.

Gaman að sjá hversu góður og öruggur Jón Sigurðsson formaður Framsóknarflokksins var í Kastljósinum nú í kvöld. Það er greinilegt að þarna fer maður sem hefur yfirgripsmikla þekkingu á sínu viðfangsefni. Hann svaraði öllum fyrirspurnum á skýran og góðan hátt, fyrirspyrjendur komu ekki að tómum kofanum hjá honum.  Hann kom vel til skila að áfram verði haldi á sömu braut í að bæta öll búsetuskilyrði okkar íslendinga. Hann var einstaklega rólegur og  kom mjög vel fyrir. Ég held að hann hafi stimplað sig mjög vel inn í þessum þætti sem mun skila sér vel í kosningunum. Markmið hans í pólitík er skýrt.   Árangur áfram og ekkert stopp.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Jón Sigurðsson  stóð sig ákaflega vel í sjónvarpinu í kvöld. Ef einhver ætti skilið
að komast á þing þá er það hann. Vill svo til að hann er í mínu kjördæmi þannig
ég mun ekki vera  í vandræðum með mitt atkvæði. Og baráttukveður til ykkar  fyrir
austan. Þetta er allt að koma!

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.4.2007 kl. 21:13

2 Smámynd: Páll Jóhannesson

Þú hlýtur að vera grínast ? - Jón var algerlega úti á túni - eins og flestir úr þessum forna bændaflokki enda eiga þeir að vera úti á túni 

Páll Jóhannesson, 29.4.2007 kl. 21:32

3 Smámynd: Guðmundur Jónas Kristjánsson

Gott að vera út á túni Páll og anda að sér hreina fjallaloftinu. Verra að vera
nirðri skurði og komast hvergi eins og þið kratar í dag........

Guðmundur Jónas Kristjánsson, 29.4.2007 kl. 21:57

4 identicon

Tekur undir hvert orð hjá þér Guðmundur, Jón var góður í kvöld.

Jóhanna Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 29.4.2007 kl. 22:05

5 Smámynd: Kristján Pétursson

Hafa búsetuskilyrði batnað á undanförnum árum í litlum sjávarbyggðum?Skyldi framsal og leiga á kvóta hafa eitthvað með það að gera?Hvaða flokkar stóðu fyrir því að  fiskurinn sameign þjóðarinnar var afhentur nokkrum flokksgæðingum í útvegi? Ég heyrði ekki Jón form.ræða neitt um þetta.

Kristján Pétursson, 29.4.2007 kl. 22:19

6 Smámynd: Páll Jóhannesson

Já það er svo margt í dag sem Framsóknarmenn vilja ekki ræða - ég skil það vel - þeir vilja auðvitað að það fenni í sporin sem allra allra fyrst 

Páll Jóhannesson, 29.4.2007 kl. 22:50

7 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Ánægður með Jón. Skil vel að kratarnir fari í fjóshauginn að leita að lýsingum

Gestur Guðjónsson, 30.4.2007 kl. 00:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Gunnlaugur Stefánsson

Höfundur

Gunnlaugur Stefánsson
Gunnlaugur Stefánsson

Forseti sveitarstjórnar Norðurþings

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 15030

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • ...savikurhofn

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband