8.4.2007 | 21:02
Temjum við okkur lífsstíl hófsemdar og hógværðar?
Biskupinn yfir Íslandi sagði í ræðu sinni í dag að við Íslendingar verði að líta í eigin barm og endurmeta lífstíl ágengni og sóunnar og temja okkur lífsstíl hófsemdar og hógværðar. Áherslan á endalausar framfarir, sívaxandi velsæld, mátt hins hrausta og sterka og stælta, er tál.
Þessi orð eru í tíma töluð hjá biskupinum og ættum við að taka þessi orð alvarlega. Samt held ég að íbúar höfuðborgarsvæðins ættu sérstaklega að taka þessi orð til sín. Ég fullyrði að ágirni og græðgi á því svæði sé miklu meiri en á öðrum svæðum á landinu. Það þarf ekki annað en að horfa í kringum sig á þessu mesta velsældar, vesældar og þenslusvæðis landsins til að sjá hvað þar er í gangi. Þarna er lifað hratt og hátt í mikilli einkaneyslu, sóun og græðgi. Fólk virðist vera jafnt og þétt að fjarlægjast hin gömlu og góðu gildi um jöfnuð og félagshyggju.
Við í sveitarstjórnin hér í Norðurþingi stefnum á að sveitarfélagið okkar verði sjálfbært og hafi burði til að veita öllum íbúum sínum þjónustu eins og best gerist á landinu. Markmiðið er að sveitarfélagið Norðurþing verði álitlegur kostur til búsetu fyrir unga og gamla um langa framtíð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.4.2007 | 13:19
Ljótu hálfvitarnir
Í gærkvöldi fór ég á allveg frábæra skemmtun í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Þarna voru á ferð miklir snillingar sem kalla sig Ljótu hálfvitana. Allir eru þessir snillingar uppaldir í sveitarfélaginu Norðurþingi ( flestir á Húsavík) fyrir utan einn sem er uppalin í Aðaldal. Þarna stóðu þeir á sviði í rúma þrjá klukkutíma og gerðu grín að sjálfum sér og öðrum af mikilli innlifun og metnaði. Áheyrendur velltust um af hlátri og sumir áttu fullt í fangi með að tolla á stólunum sínum. Það var allveg greinilegt að allir gestir samkomunar fóru ánægðir heim eftir þessa stórkostlegu tónleika og leiksýningu.
Endilega þið sem lesið þetta og sjáið Ljótu hálfvitana auglýsta með samkomu, reynið endilega að komast. Þessi sýning er hverrar krónu virði, því lofa ég.
Ég tel að mér sem forseta sveitarstjórnar Norðurþings beri skilda til að þakka Ljótu hálfvitunum fyrir mig og mína.
Takk Toggi, takk Ármann, takk Sævar, takk Aggi, takk Eggert, takk Snæbjörn, takk Baldur, takk Guðmundur og síðast en ekki síst takk Oddur Bjarni.
Næstu tónleikar Ljótu hálfvitanna eru á Gamla Bauk á Húsavík í kvöld, endilega mætið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2007 | 08:52
Píslagangan
Jæja, þá er Föstudagurinn langi runnin upp. Fallegt veður hér á Húsavík, stillt og svalt. Erum að leggja af stað upp í Mývatnssveit til að taka þátt í Píslagöngunni sem hefur verið árlegur viðburður hjá fjölskyldu minni undanfarin ár.
Píslagnagan er 36 kílómetra ganga umhverfis Mývatn, öll gangan er gengin á malbiki og reynir því mikið á göngumenn sem ganga allan hringinn.
Upphaf þessara göngu var að fjórir mývetningar gengu umhverfis vatnið á Föstudaginn langa fyrir ca. 15 árum. Síðan hefur þátttakendum fjölgað jafnt og þétt og verða líklega vel á þriðja hurdraðið í dag. Sýnir vel hvað lítið þarf til að draga að ferðamenn að og búa til stóran árlegan viðburð.
Uppskrift að góðum Föstudegi langa er að ganga heilan eða hálfan hring umhverfis Mývatn. Fá sér síðan stóran kaldan bjór í Gamla bænum á eftir, engin bjór betri en þessi sem tekin er eftir góðan göngutúr. Skella sér síðan í Jarðböðin í Mývarnssveit til að mýkja þreytta vöðva og slappa af. Og borða síðan góða lambasteik með grænum baunum of sultu og fl. í kvöldmat.
Vonandi verða blöðrunar með færra móti í ár.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2007 | 22:56
Var útkallið til New York hneyksli aldarinnar??
Stöð tvö sýndi kosningarþátt úr Norðausturkjördæminu þann 4. aprí s.l. Þar kom fram að Steingrímur J. Sigfússon formaður VG hafði kallað það hneyksli aldarinnar þegar Valgerður Sverrisdóttur þá Iðnaðarráðherra skrifaði undir viljayfirlýsingu um mat á hagkvæmi þess að byggja álverksmiðju á Bakka við Húsavík.
Þetta samkomulag var gert á milli Húsavíkurbæjar, Alcoa og ríkistjórnar Íslands en hvataaðilinn að þessu verkefni var bæjarstjórn Húsavíkurbæjar og fyrirtæki tengd sveitarfélaginu.
Mikið var lagt að Valgerði Sverrisdóttur þá Iðnaðarráðherra að vinna að þessu verkefni að krafti með heimamönnum. Merkilegast er að þeir sem lögðu harðast að henni og gerðu mestar kröfur voru bæjarfulltrúar vinstri grænna í bæjarstjórn Húsavíkurbæjar. Á sama tíma kallar Steingrímur J. Sigfússon samkomulagið hneyksli aldarinnar.
Ég staðfesti það hér og nú að Valgerður Sverrisdóttir var að ganga erinda allra bæjarstjórnar Húsavíkurbæjar og þar með talið fulltrúum vinstri grænna í bæjarstjórninni í þessu máli.
Útkallið til New York var ekkert hneyksli, heldur var um mikilvægan áfanga að ræða í að tryggja íbúum í Þingeyjasýslum öflugt atvinnulíf og stór áfangi í að snúa við neikvæðri íbúaþróunn á svæðinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2007 | 15:59
Bloggsíðan mín!
Jæja, þá er ég búinn að útbúa mér bloggsíðu hér á mbl.is. Hugmynd mín með með þessari bloggsíðu er að taka þátt í þeirri miklu umræðu og skoðanskiptum sem hér eiga sér stað. Ásamt því að koma mínum skoðunum og sjónarmiðum á framfæri við lesendur.
En hver er bloggarinn?
Ég heiti Gunnlaugur Stefánsson og er búsettur á Húsavík. Ég er menntaður hússmíðameistari frá Iðnskólanum í Reykjavík og starfa sem framkvæmdastjóri Sagarinnar ehf ( www.golflistar.is ) Einnig er ég forseti sveitarstjórnar í sveitarfélaginu Norðurþing ( www.nordurthing.is ) . Ég sit fyrir hönd sveitarfélagsins í fjölmörgum stjórnum, ráðum og nefndum bæði innan stjórnsýslu sveitarfélagsins og utan hennar.
Konan mín heitir Dóra Ármannsdóttir og starfar sem framhaldsskólakennari við Framhaldsskólann á Húsavík. Hún er núna í námsleyfi og er í framhaldsnámi við Háskólann á Akureyri í menntunarfræðum.
Synir okkar eru fjórir og heita Andri Birgisson 24 ára háskólanemi, Stefán Breiðfjörð Gunnlaugsson 22 ára framhaldsskólanemi, Ármann Örn Gunnlaugsson 15 ára og Patrekur Gunnlaugsson 11 ára nemendur við Borgarhólsskóla á Húsavík og Tónlistaskólann á Húsavík.
Áhugamál mín eru fjölmörg en þau helstu eru. Fjölskyldan, stjórnmál, skógrækt, golf, stangveiði, ferðarlög og viðskipti.
Læt þetta duga um mig og mína.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Gunnlaugur Stefánsson
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar